Ministry for the Environment, Energy and Climate of Iceland

03/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/20/2026 06:59

Starfleyfisskyldu létt af 16 flokkum atvinnurekstrar

20. mars 2026 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Starfleyfisskyldu létt af 16 flokkum atvinnurekstrar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem léttir starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnurekstrar, með breytingum á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022 sem tekið hefur gildi.

Breytingarnar fela í sér að einvörðungu er gerð krafa um skráningu atvinnurekstrar, í stað starfsleyfisskyldu áður. Meðal þeirra 16 flokka atvinnurekstrar sem nú teljast skráningaskyldir eru dýralæknastofur, gæludýraverslanir, heilsugæslustöðvar, heilsuræktarstöðvar, húðflúrstofur, íþróttahús og leiksvæði.

Skráning felur í sér skráningu tiltekins atvinnurekstrar sem tiltekinn er í viðauka reglugerðarinnar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu og hefur Umhverfis- og orkustofnun gefið út uppfærð samræmd starfsleyfisskilyrði. Skráning er ekki auglýst í fjórar vikur líkt og starfsleyfi og ekki er gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráning er ótímabundin en starfsleyfi er gefið út til tiltekins tíma. Sé starfsemi hins vegar bæði starfsleyfisskyld og skráningarskyld þá vegur starfsleyfisskyldan þyngra en skráningin og aðeins þarf að sækja um starfsleyfi.

Enn frekari einföldun er í farvatninu að því er varðar starfsleyfi sem veitt eru samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í frumvarpi um breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits, sem ráðherra hefur farið með fyrir ríkisstjórn, er meðal annars kveðið á um afnám auglýsingaskyldu vegna 104 tegunda atvinnustarfsemi svo fremi sem starfsemin falli ekki undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í því felst að skilyrði um fjögurra vikna auglýsingu og umsagnatíma áður en starfsleyfi er veitt fellur brott. Mun þetta t.a.m. gilda um gististaði, baðstaði, verkstæði, heilsuræktarstöðvar, ýmsa iðnaðar- og landbúnaðarframleiðslu, skólahúsnæði og íþróttahús.

Reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir


Efnisorð

Til baka
Ministry for the Environment, Energy and Climate of Iceland published this content on March 20, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 20, 2026 at 12:59 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]