Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra endurnýjaði í vikunni samstarfssamninga við Félag sameinuðu þjóðanna og landsnefndir UNICEF og UN Women um kynningarstarf og fræðslu um alþjóðasamstarf of þróunarsamvinnu. Undirritun samninganna, sem rúmast innan samþykktra fjárheimilda, fór fram í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn.
Utanríkisráðuneytið hefur um árabil átt gott samstarf við félögin um kynningar- og fræðslumál en öll gegna þau mikilvægu hlutverki við að veita upplýsingar og efla umræðu um alþjóðlega þróunarsamvinnu. Umræða um alþjóðamál á Íslandi hefur sjaldan verið meiri en um þessar mundir og því mikilvægt að stuðla að þekkingaruppbyggingu og miðlun réttra upplýsinga til að styðja við málefnalega umræðu. Nýir samstarfssamningar gera félögunum kleift að efla fræðslu- og kynningarstarf og móta nýjar leiðir til miðlunar og samstarfs, t.d. við börn og ungmenni.
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) eru hornsteinn alls alþjóðasamstarfs, en þær vinna að friði og öryggi, mannréttindum, virðingu fyrir alþjóðalögum og félagslegri og efnahagslegri þróun. Barnahjálp SÞ (UNICEF) og Stofnun SÞ um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) eru tvær af áherslustofnunum í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja kynjajafnrétti og réttindi barna um allan heim. Starf félaganna þriggja á Íslandi styður við hlutverk Sameinuðu þjóðanna með miðlun þekkingar um verkefni þeirra, um alþjóðamál og þróunarsamvinnu til almennings á Íslandi.