Prime Minister's Office of Iceland

01/29/2026 | Press release | Distributed by Public on 01/29/2026 07:25

Forsætisráðherra leggur til verulega lækkun handhafalauna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um laun forseta Íslands og lögum um Stjórnarráð Íslands. Með frumvarpinu er lögð til veruleg lækkun launa handhafa forsetavalds, úr samtals um 10 milljónum á ári niður í fasta greiðslu upp á 300 þúsund krónur. Greiðslurnar dragast þannig saman um 97 prósent.

Samkvæmt stjórnarskránni fara forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar með forsetavald um stundarsakir þegar forseti getur ekki gegnt störfum um sinn. Breyta þyrfti stjórnarskrá til að afnema greiðslurnar að fullu en í frumvarpi forsætisráðherra er lögð til hófleg þóknun til handhafa.

Úr 300 þúsund á mánuði niður í 8 þúsund

Greiðslur til handhafanna þriggja hafa undanfarin ár numið samanlagt um 10 milljónum króna að meðaltali á ári, þ.e. rúmar 3 milljónir kr. hafa fallið í skaut hvers og eins á ársgrundvelli. Með frumvarpi forsætisráðherra er lagt til að greiðslur á ári lækki í 300.000 kr. samanlagt á ári, þ.e. 100 þúsund kr. á mann.

Mánaðarlega myndu greiðslur á hvern handhafa þannig lækka úr tæplega 300 þúsund kr. niður í rúmlega 8.000 kr. Þá er ekki gert ráð fyrir að heildarfjárhæð handhafalauna á ári, 300 þúsund kr., taki breytingum í hlutfalli við verðlagsbreytingar. Með lækkuninni verða handhafagreiðslur fremur táknrænar en tengdar við vinnuframlag.

Mikilvægt að æðsta stjórn sýni gott fordæmi

"Lækkun á greiðslum til handhafa forsetavalds er mikilvæg og táknræn aðgerð. Ríkisstjórnin hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á hagræðingu í ríkisrekstri. Við hófum kjörtímabilið á að leggja niður eitt ráðuneyti og höfum lagt mikið upp úr sparnaði í yfirbyggingu á öllum vígstöðvum. Á tímabili fjármálaáætlunar munum við skila hagræðingu upp á 107 milljarða. Tillaga mín í dag um lækkun handhafalauna er einmitt í samræmi við þessar áherslur ríkisstjórnarinnar," segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra.

"Þetta eru tíu milljónir sem runnið hafa til þriggja einstaklinga á hverju ári umfram almenn launakjör þeirra, sem eru afar góð. Þó að þetta séu ekki háar upphæðir í stóra samhenginu skiptir miklu máli að æðsta stjórn líti inn á við þegar kemur að hagræðingu."

Með frumvarpi forsætisráðherra eru einnig lagðar til breytingar til að skýra betur hlutverk forsetaritara, heimila forseta að ráða sér aðstoðarmann án þess þó að verið sé að fjölga starfsmönnum forsetaembættisins. Þá er frumvarpinu ætlað að skapa skýrari forsendur fyrir forystu- og samræmingarhlutverk forsætisráðherra varðandi öryggi æðstu stjórnar ríkisins, staðgöngu ráðherra og rafrænar undirritanir.

Prime Minister's Office of Iceland published this content on January 29, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on January 29, 2026 at 13:25 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]