Asar hf.

09/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 09/18/2026 09:50

Tímabundin lokun verslunar í Ármúla

Til baka í fréttayfirlit

Tímabundin lokun verslunar í Ármúla

18. september 2026

Verslun Símans í Ármúla verður lokuð í október vegna framkvæmda.

Í októbermánuði verður verslun Símans í Ármúla lokuð vegna framkvæmda. Við ætlum að stækka verslunina, bæta aðstöðuna og gera upplifun viðskiptavina enn betri.

Verslunin lokar þriðjudaginn 30. september kl. 17:00. Framkvæmdir standa yfir í allan október og verða bæði verslun og móttaka lokuð á meðan á þeim stendur. Endurbætt verslun Símans í Ármúla opnar aftur 2. nóvember.

Á meðan á lokuninni stendur bendum við viðskiptavinum á höfuðborgarsvæðinu á verslun Símans í Smáralind.

Opnunartími í Smáralind

Mánudagar-föstudagar: kl. 9:00-19:00 (lengdur opnunartími)
Laugardagar: kl. 11:00-18:00
Sunnudagar: kl. 12:00-17:00

Verslun Símans á Akureyri verður opin samkvæmt hefðbundnum opnunartíma.

Afhending pantana

Á meðan verslunin í Ármúla er lokuð verða pantanir á höfuðborgarsvæðinu afhentar í verslun Símans í Smáralind. Einnig verður boðið upp á fría heimsendingu á öllum vörum í október.

Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í endurbættri verslun í Ármúla í nóvember.

Asar hf. published this content on September 18, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on September 18, 2026 at 15:50 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]