The President of Iceland

11/07/2024 | Press release | Distributed by Public on 11/08/2024 04:29

Blái trefillinn

Fréttir|07. nóv. 2024

Blái trefillinn

Björn Skúlason, eiginmaður forseta, heimsækir Krabbameinsfélagið Framför og tekur á móti fyrsta eintakinu af Bláa treflinum, barmmerki sem selt er til styrktar starfi félagsins. Framför er félg karla með krabbamein í blöðruhálskirtli, sem er algengasta tegund krabbameins meðal karla. Félagið efnir til fjáröflunarátaksins Bláa trefilsins í nóvember ár hvert og tileinkar mánuðinum um leið vitundarvakningu um blöðruhálskrabbamein.

Björn tók á móti fyrsta eintaki Bláa trefilsins í Hellinum, félagsmiðstöð Framfarar í Grafarvogi. Þangað geta karlar sem greinst hafa með blöðruhálskrabbamein og aðstendur þeirra leitað eftir fræðslu, félagsskap og stuðningi. Barmnælan er til sölu á vefsíðu félagsins.

Deila
The President of Iceland published this content on November 07, 2024, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on November 08, 2024 at 10:29 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]