06/03/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/03/2026 06:56
Alþingi samþykkti nýverið frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um fullnustu refsinga. Með þeim verður heimilt að veita erlendum föngum sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Viðkomandi verður að því loknu tafarlaust vísað úr landi og sætir í framhaldinu endurkomubanni til landsins og á Schengen-svæðið eftir atvikum. Heimildin er tímabundin og gildir til 1. júlí 2027.
"Það að fremja afbrot hér á landi á að hafa raunverulegar og langvarandi afleiðingar. Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir er eðlilegt að brotamanni verði vísað úr landi strax við reynslulausn og sæti endurkomubanni," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Í lögunum er einnig kveðið skýrt á um að þeir sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu undir rafrænu eftirliti eða á áfangaheimili.
Undirbúningur vegna lagabreytingarinnar hefur staðið yfir hjá Fangelsismálastofnun og heimferðar-og fylgdardeild ríkislögreglustjóra að undanförnu. Brottvísunarferlið hjá um 10 hefst um leið og lögin taka gildi. Öll hlutu dóm fyrir fíkniefnalagabrot og hafa engin tengsl við landið. Um tuttugu afplána nú dóm í íslenskum fangelsum og eru með staðfesta brottvísun.
Erlendum ríkisborgurum í íslenskum fangelsum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum en í dag eru yfir sextíu með erlent ríkisfang að afplána dóm. Með lagabreytingunni er dregið úr þeim þrýstingi sem hefur verið á fangelsiskerfinu, boðunarlistar styttir og betri nýting tryggð.
Lagabreytingarnar eru liður í áframhaldandi vinnu ráðuneytisins við að styrkja fullnustukerfið og bregðast við stöðu fangelsismála. Unnið er að fjölgun afplánunarrýma en undirbúningur að útboði fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir við opna fangelsið að Sogni hófst í maí. Með þeim framkvæmdum fjölgar plássum þar úr 21 í 35.
Auk þess er lögð áhersla á að nýta betur heimildir til að flytja erlenda fanga til afplánunar í heimaríki. Þá er undirbúningsvinna í fullum gangi fyrir framkvæmdir við nýtt öryggisfangelsi við Stóra-Hraun sem verður mikilvægur áfangi í fangelsismálum hér á landi. Áætlaður heildarkostnaður er 28,9 milljarðar. Byggingu þess verður skipt í tvo áfanga og ráðgert að fyrsta áfanga verði lokið 2031. Þegar fangelsisbyggingin er fullbyggð verða þar rými fyrir 128 afplánunarfanga.
"Við erum að rjúfa kyrrstöðu síðasta áratugar í fangelsismálum. Þessi lagabreyting er ekki stök aðgerð heldur hluti af stærra samhengi. Við erum að fjölga fangelsisplássum, nýta þau betur og tryggja að fangelsin ráði við það hlutverk sem þeim er ætlað. Þessi tímabundna aðgerð hefur áhrif strax, léttir á fangelsiskerfinu og tryggir að plássin nýtist betur fyrir þá sem eiga að afplána refsingu hér á landi ," segir dómsmálaráðherra.